top of page

Valgeir Guðjónsson flytur lög sín og texta, á íslensku eða ensku eftir aðstæðum og spjallar við áheyrendur um heima og geima.

 
Valgeir er sannkallaður meistari augnabliksins og söngkvæði allt frá Söguöld til vorra tímafalla í góðan jarðveg hjá gestum Bakkastofu. 

Aðstaða í Bakkastofu
Húsnæðið okkar hentar vel fyrir vinnufundi og smærri samkomur - eitthvað til að hafa á bak við eyrað. Við björgum laufléttum veitingum samkvæmt óskum.

Ásta Kristrún segir sögur af formæðrum sínum og -feðrum með sérstakri áherslu á fólkið í Húsinu, sem nú er Byggðasafna Árnesinga.


Örlagasögur sem spanna 150 ára tímaskeið bregða birtu á lífið í landinu þegar nútíminn knúði dyra og þjóðin upplifði mikla hraðferð að breyttum lífsháttum.

Auk fastra dagskráa Bakkastofa (að ofan) sérsníðum við dagskrár samkvæmt óskum.

 

Dagskrár fyrir erlenda gesti fara fram á ensku eða Norðurlandamáli.

Við fáum sterk jákvæð viðbrögð frá gestum okkar um hvað sálin í húsinu er góð og gjöful. Við elskum að taka á móti fólki og hlökkum til að sjá þig sem fyrst!

bakkastofa - eyrargata 32, 820 Eyrarbakki / bakkastofa@eyrarbakki.is / tel. 821 2428 - 561 2429

bottom of page