top of page

Ásta Kristrún Ragnarsdóttir er beinn afkomandi þess merkisfólks sem kennt er við Húsið og gerði garðinn frægan á ofanverðri 19. öld.

Með sögum af formæðrum sínum og -feðrum málar Ásta myndir af lífinu í landi sem er að hrista af sér gamlan klafa fátæktar og kúgunar og stefnir á vit nýrra og betri tíma.

 

Ásta varðveitir ættardýrgripi á heimili sínu á annarri hæð Bakkastofu sem tengjast sögupersónum frásagna hennar. Sögurnar fara víða, hafa viðkomu í öllum landshornum og beggja vegna Atlantsála.

Á Eyrarbakka fær fólkið sem tengist hinu sögufræga "Húsi", sem nú hýsir Byggðasafn Árnesinga, auðvitað sérstaka athygli..

 

Tímalengd 45 - 50 mínútur

Það er við hæfi að heimsækja Húsið í fylgd afkomanda fólksins sem gerði garðinn sinn á Bakkanum fræga á ofanverðri 19. öldinni.

 

Sögurnar leynast í hverju horni þess einstaka og fallega safns, sem er nú sem fyrr einstök staðarprýði í gamla þorpinu sem er eitt hið fegursta á Íslandi.

 

Hér er kjörið tækifæri til að horfast í augu við fortíðina og hlusta á nið aldanna í hinu 250 ára gamla húsi.

bakkastofa - eyrargata 32, 820 Eyrarbakki / bakkastofa@eyrarbakki.is / tel. 821 2428 - 561 2429

bottom of page