top of page
Heimshornaborð

Í sumar höldum við áfram að leigja út aðstöðuna fyrir viðburði og skemmtan af ýmsu tagi.

 

Fyrir þá sem velja að hafa veitingar á fundum og í gleðskap hefur Hafnarloftið bryddað upp á spennandi nýjung gestum fyrir gesti sína. Nýjungin nefnist Heimshornaborð þar sem valið stendur á milli kræsinga og matargerðarlistar frá ólíkum þjóðlöndum.

Eldri kynslóðir muna þá tíð þegar Ísland var nánast laust við allan „útlenskan“ mat. Það sem var framandi var í mesta lagi danskt og neysla pasta og hvítlauks var óþekkt.

Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og Íslendingar runnið á erlendu matarlyktina.

 

Heimshornaborðið leitar fyrst fanga á Indlandi og við strendur Miðjarðarhafsins, einna helst til Ítalíu, Spánar og Grikklands, sem tvö valinkunn úrvalseldhús sjá um; Austur- Indíafélagið og Delicatessen / Ostabúðin. Norræn og íslensk matargerðarlist mun líka eiga sinn sess á Heimshornaborðinu og hinn velvaldi veitingaaðili sem sinna mun þeim réttum, verður kynntur hér á síðunni áður en langt um líður.

 

Því geta geta nú hópar sem bóka Hafnarloftið og/eða viðburði þess notið gómsætra og forvitnilegra rétta út af fyrir sig í einstökum húsakynnum Hafnarloftsins hátt uppi og mitt í hjarta gamla miðbæjarins.

 

Indverskt eða ítalskt, sterkt, staðgott, framandi, kunnuglegt, hollt, gott og hrikalega freistandi - suðrænt, norrænt austrænt? Hér er sannarlega ýmislegt hægt og ykkar að velja og njóta!

  • Wix Facebook page
  • Wix Twitter page
  • Wix Google+ page

hafnarloftið / harbourloft - lækjartorg 5, 101 reykjavík / asta@nema.is - 821 2428 - hafnarloftid.is

bottom of page