top of page

Bakkastofa - Eyrargata 32, 820 Eyrarbakki / bakkastofa@eyrarbakki.is / tel. 821 2428 - 561 2429

Þorrabakkinn á Eyrarbakka
-- fyrir vina- og vinnustaðahópa
Nú er hann enn á norðan...

Við í Bakkastofu  eltum árstíðirnar eftir árið um kring og bjóðum vina- og vinnustaðhópum menningu ásamt mat á einu bretti.

Þjóðlegur fróðleikur, fjörug tónlist og samvera við gott fólk er góður eldiviður á hjartabálið. Valgeir Guðjónsson miðlar léttum fróðleik um árstíðina, mundar slaggígju sína, efnir til samsöngs og veitir innsýn lagabálkinn Saga Music. Ásta Kristrún húsfreyja sér til þess að selskapið allt fari fram af stakri prýði. Þeim hópum sem áhuga hafa bíðst að líta við í Húsinu, hinu nafntogaða Byggðasafni Árnesinga. 

Innlit í Húsið fyrir þá sem óska

bottom of page