top of page

Veitingar

​​Góður matur í fallegu umhverfi - eitthvað sem öllum líkar að upplifa. Við á Hafnarloftinu vinnum með  framúrskarandi veitingahúsum. 

Margir muna þá tíð þegar Ísland var laust við nánast allan „útlenskan“ mat,  það sem var framandi var gjarnan danskt og neysla pasta og hvítlauks var nær óþekkt. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og Íslendingar runnið á erlendu matarlyktina.


Við bjóðum gestum okkar að njóta fjölbreytts úrvals veislufanga þegar mateseðill er settur saman fyrir hverkyns tilefni.

Þótt Hafnarloftið sé ekki eiginlegt  veitingahús fara menning og matur hönd í hönd  þegar fólk kemur saman til að gleðjast og funda.

 

Vilji staðarhaldara til að nýta til fulls sérstöðu Hafnarloftsins með hliðsjón af einstökum  híbýlum og staðsetningu, leiddi til hugmyndarinnar um Heimshornaborð og innleiðingu þess í samstarfi við valinkunn veitingahús. Heimshorna-þemað er auðvelt að tengja við heiti staðarins því höf og hafnir eru í hugum fólks slagæð við umheiminn.



Með áherslu á matargerðarlist frá ólíkum heimshornum í bland við tónlist, frásagnir og andblæ fjarrænna heimshluta, getur útkoman orðið að einskonar ferðalagi upplifana

 

Heimshornaborðin eru jafnt fyrir sitjandi sem standandi veisluhöld og umfang  dagskráa sem þeim fylgja, fer eftir óskum hópa og gesta hverju sinni.​.

 

​​​Fyrstu Heimshornaborðin byggja á matargerðarlist Indlands, Miðjarðarhafslanda og norrænna slóða. 

Íslenskt klassískt kaffibrauð eins og pönnukökur, kleinur og flatkökur eru á boðstólum fyrir hópa sem sækja menningarviðburði að degi til.
 

Ííslenskra matseðlar eru áberandi þegar líða tekur að jólum og hópar koma saman til að gleðjast í rökkri aðventu og áramóta. Andblær fjalla og kletta og ábúenda þeirra tekur þá yfir á Hafnarloftinu gestum til ómældrar ánægju.
 

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um matseða og tilboð fyrir hópa.​

  • Wix Facebook page
  • Wix Twitter page
  • Wix Google+ page

hafnarloftið / harbourloft - lækjartorg 5, 101 reykjavík / asta@nema.is - 821 2428 - nemaforum.is

bottom of page