top of page

 

John Whilliam Stepehnson (1946)


John Whilliam Stepehnson) sem er fæddur í Minnesota í USA en ólst upp og hefur verið búsettur í Norður Kalíforníu. Móðir hans var íslensk en faðirinn norskur.​ JWS Nam myndlist við Berkeley Academia, hina rómuðu listadeild Kaliforníuháskóla í Berkeley og hefur málað og unnið í mósaík allar götur síðan.

 

Orkan og alheimurinn hefur verið uppspretta verka JWS síðustu 10 árin og inn í verkin  fléttar hann því undrafyrirbæri vísindanna sem kallast Large Hadron Collider ( LHC).​ JWS beitir sterkum og birturíkum litum í tjáningu sinni á umheiminum og drifkrafti lísfsins. Óvenjuleg blanda af eðlisfræði  og mannlegum drifkrafti  eru skilaboðin sem listamaðurinn varpar til okkar gegnum verk sín.

 

Þótt JWS hafi ekki verið búsettur á Íslandi nema í eitt ár í bernsku teygir myndlistarrót hans sig hingað til lands. Amma hans var listakonan Kristrún Hallgrímsson, sem var fyrst íslenskra kvenna til að fullnema sig í píanóleik til einleiks og kennslu og stundaði samhliða myndlist af miklum hagleik og kappi, Myndverk sín útsetti hún í forníslenskan krossaum.

 

Að auki hafði Kristrún brennandi áhuga á stjörnufræði og var áskrifandi að tímarítum um þau vísindi. Þar skarast sannarlega svið hennar við dóttursoninn í Kaliforníu.



Örlagasaga Kristrúnar Ömmu JWS hefur verið mörgum Íslendingum hugleikinn, en  Ólafur Jóhann Jóhannsson gerði henni að hluta til skil í Skáldsögunni „Höll minninganna“. Saga Kristrúnar er meðal þess efnis sem fjallað er um í dagskrá Hafnaloftsins „Window of the past“ sem kynnt er undir liðnum "Viðburðir" hér á heimasíðunni.

Blues in G / Popplag í G dúr - 33 X 44

Boom and Bust - 33 X 44

Windy - 33 X 44

Fly By - 33 X 44

Joy - 33 X 44

Invitation - 33 X 44

bottom of page