top of page

Fundir​

Hafnarloftið býður kjöraðstæður til fundarhalda, allt frá fámennum fundum í ró og næði til stærri funda fyrir allt að 60 þátttakendur, sem síðan geta skipt liði í smærri einingar til úrvinnslu og annarar sértækrar iðju.



Staðsetning í hjarta miðborgarinnar, ró og næði, tækjabúnaður, vistlegt umhverfi og ánægðir viðskiptavinir segja það sem segja þarf.

​

Hafðu samband og við tökum vel á móti ykkur. 

Gestastofa

Miðgarður

Eyrarbakkastofa

Bókaherbergi/Testofa

 



Hafnarloftið er leigt út fyrir fundi af ólíkum stærðum og gerðum sem og fyrir fyrilestra  og starfsmannviðtöl. Nú þegar hafa bæði félagasamtök og vinnustaðir orðið að föstum viðskiptavinum Hafnarloftsins.

​

Aðstaðan hentar  vel í tilvikum þegar markmiðið er  að komast út af vinnustaðnum til að brjóta upp daglegt mynstur og stuðla að hlutlægri sýn á verkefni, endurskipulagningu og mótun framtíðarsýnar.

​

​Fastir viðskiptavinir  telja Hafnarloftið vera athvarf sem einnkennist af hlýlegu og óhefðbundnu umhverfi í bland við persónulega þjónustu. Af þeim umsögnum má álykta að markmiði staðarhaldara um  starfrækja Býli í borg í miðborginni hafi náðst og að það falli vel að þörfum gesta.​

​

Hægt er að panta allt rýmið eða einstaka hluta þess, ýmist í hálfan eða heilan dag. Algengt er síðan að fundarmenn vilji slaka á í dagslok til að njóta veitinga og fallegs umhverfis.

  • Wix Facebook page
  • Wix Twitter page
  • Wix Google+ page

hafnarloftið / harbourloft - lækjartorg 5, 101 reykjavík / asta@nema.is - 821 2428 - nemaforum.is

bottom of page