top of page

Veislur

Veislur Hafnarloftsins spanna ólík tilefni fólks á öllum aldri.  Húsakynnin hafa töluverða sérstöðu miðað við þær aðstæður sem bjóðast þegar veislur eru haldnar utan heimila. Þótt húskynnin rúmi vel á annað hundrað manns, henta þau ekki síður hópum allt niður í 10 – 20 manns.

 

Rýmið skiptist í ólíkar stofur sem hver og ein hefur sitt sérkenni . Uppskipting rýmis fær fólk til að ganga um og upplifa eitthvað nýtt við hvert horn, hvort sem um ræðir fólk eða umhverfi.

Gestgjafar sem leigt hafa  Hafnarloftið fyrir veislur hafa  flestir á orði að góður og umfaðmandi andi húsnæðisins framkalli  ferska og jákvæða upplifun gesta sinna. Því sé Hafnarloftið tilvalinn vettvangur til að kætast og njóta sín og annarra. Meðmæli sem marka má!

Starfsfólk Hafnarloftsins er meðvitað um hugmyndafræði staðarins og það fær undantekningarlaust hrós fyrir fagmannlega en um leið persónulega þjónustu og hlýtt viðmót.



Hver og ein fyrirspurn er skoðuð og metin útfrá væntingum og óskum með tilliti til veitinga, uppstillingar og dagskráratriða. Í kjölfarið gerir staðarhaldari gestum tilboð í verkið í heild.

 

  • Wix Facebook page
  • Wix Twitter page
  • Wix Google+ page

hafnarloftið / harbourloft - lækjartorg 5, 101 reykjavík / asta@nema.is - 821 2428 - nemaforum.is

bottom of page